lifsfer

Fuglar

Námsgagnastofnunar um Einkenni fugla: Fjaðrir eru aðaleinkenni fugla. Fuglar hafa vængi og flestir geta flogið. Fuglar hafa góða sjón. Fuglar verpa eggjum. Með því að smella á rauðu reitina getur þú kynnt þér helstu einkenni fugla.

Lífverur á jörðinni

Á jörðinni búa margar lífverur. Allar lífverur vaxa, nærast og deyja. Hver lífvera á sinn lífsferil. Lífsferill allra lífvera byrjar þegar nýtt líf kviknar og lýkur með dauða lífverunnar. Þá hefur lífveran myndað ný afkvæmi. Þannig heldur lífið áfram.