Um Námsgagnastofnun
Jafnréttisáætlun
Markmið áætlunarinnar er að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla í Námsgagnastofnun og jöfnum möguleikum kynjanna til að nýta sér allan rétt sem kveðið er á um í lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Lögð er áhersla á að yfirmenn hafi frumkvæði til aðgerða sem hafa ofangreind markmið að leiðarljósi, gæti kynjasamþættingar við alla stefnumótun og áætlanagerð og leiti eftir samvinnu og samábyrgð allra starfsmanna. Hverjum starfsmanni ber að stuðla að því að jafnréttisáætlunin sé haldin, m.a. með því að koma fram við samstarfsmenn, starfsumsækjendur og viðskiptavini af réttsýni og óhlutdrægni. Sérstaka áherslu skal leggja á að námsefni, sem stofnunin gefur út og dreifir, mismuni ekki kynjum eins og kveðið er á um í Gátlista Námsgagnastofnunar fyrir höfunda texta og myndefnis.
1. Framvæmd og umfang
1.1 Um áætlunina
Áætlun þessi tekur annars vegar til stjórnunar stofnunarinnar og starfsmanna og hins vegar til þjónustu sem stofnunin veitir viðskiptavinum sínum.
1.2 Jafnréttisnefnd.
Skipa skal jafnréttisnefnd til tveggja ára í senn. Hlutverk hennar er að fylgjast með lögum og reglum stjórnvalda varðandi jafna stöðu kynjanna, fylgja eftir jafnréttisáætlun stofnunarinnar, kynna hana og endurskoða eftir þörfum.
1.3 Nefndir og ráð.
Við skipan í nefndir og ráð á vegum stofnunarinnar skal leitast við að hafa hlutfall kynja sem jafnast.
2. Starfsmannastefna, starfsaðstæður og kjör
2.1 Auglýsingar og ráðningar
Í auglýsingum um starf skal koma fram hvatning til þess kyns sem er þá í minnihluta í starfsgreininni eða hvatning um að konur jafnt sem karlar sæki um starfið. Þegar ráðið er í stjórnunarstöðu skal þess gætt að hafa bæði kynin í huga við gerð auglýsingar. Við tilfærslur í störfum eða tímabundnar afleysingar skal einnig gætt sérstaklega að jöfnum rétti kynjanna. Jafnréttissjónarmið skulu metin til jafns við önnur sjónarmið þegar ráðið er í stöður. Það kynið sem er í minnihluta í viðkomandi starfsgrein skal að öðru jöfnu ganga fyrir við ráðningar þegar umsækjendur eru jafnhæfir.
2.2 Starfsaðstæður og kjör
Við úthlutun verkefna, tilfærslur í störfum og uppsagnir skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. Gæta skal þess að konur og karlar njóti að öllu leyti sambærilegra kjara og starfsaðstæðna og er í því sambandi vísað til laga nr. 10/2008. Það telst þó ekki mismunun að taka sérstakt tillit til kvenna vegna þungunar, barnsburðar og umönnunar ungbarna.
2.3 Launamál
Við ákvörðun og launa og fríðinda skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað, sbr. 25. grein laga nr. 10/2008. Í því sambandi skal leitast sérstaklega við að meta jafnt starfssvið, reynslu og menntun karla og kvenna.
2.4 Vinnutími
Starfsfólk Námsgagnastofnunar skal eiga kost á sveigjanlegum vinnutíma, hlutastörfum eða annarri hagræðingu vinnutíma, þar sem því verður við komið Þannig skal starfsfólki auðveldað að samræma fjölskylduábyrgð starfi. Konum og körlum skal einnig gert kleift að minnka við sig vinnu tímabundið til að sinna fjölskylduábyrgð, eins og ummönnun barna og sjúkra fjölskyldumeðlima.
2.5 Endurmenntun
Tryggt verði að bæði kynin eigi sama rétt til endurmenntunar og starfsþjálfunar svo og til að sækja námskeið til að auka hæfni í starfi.
2.6 Vinnuaðstæður
Tryggt verði að vinnuaðstæður henti báðum kynjum.
2.7 Misbeiting
Telji starfsmaður sé misboðið eða á sér brotið á grundvelli kynferðis skal honum tryggður vettvangur til að koma kvörtun sinni á framfæri.
3. Fræðsla og ráðgjöf
3.1 Fræðsla
Fræðsla um jafnréttismál og leiðir til að vinna að jafnri stöðu kynjanna skal vera virkur þáttur í öllu starfi innan Námsgagnastofnunar.
3.2 Hvatning, jákvæðni, samkennd
Námsgagnastofnun skal vinna að því að jafna stöðu kynjanna og veita starfsmönnum af báðum kynjum hvatningu til að rækta sín séreinkenni, jákvæð samskipti kynjanna og samkennd.
3.3 Ráðgjöf
Einstaklingum, starfsmönnum og stjórnendum, skal standa til boða ráðgjöf í jafnréttismálum. Þetta á bæði við um störf þeirra og starfsaðstæður, s.s. kjör og samskipti á vinnustað, kynferðislega áreitni, valdbeitingu og önnur þau mál sem snúa að jafnrétti og samskiptum kynjanna á vinnustað.
Aðerðalisti
1. Auglýsingar
Í auglýsingum um starf skal koma fram hvatning til þess kyns sem þá er í minnihluta í starfsgreininni. Ef umsækjendur falla ekki undir skilgreininguna skal auglýst öðru sinni.
2. Starfsaðstæður og laun
Gera skal árlega úttekt á launum starfsmanna og tryggja þar með símat á launajafnrétti kynjanna. Símatið taki einnig til ýmissa fríðinda eða aukagreiðslna, s.s. greiðslna fyrir afnot bifreiða, aðgengi að tölvum eða öðrum tækjum utan vinnustaðar o.s.frv. Niðurstöður skulu kynntar öllum starfsmönnum.
3. Kannanir á aðstæðum á vinnustað
Á tveggja ára fresti skal gera könnun meðal starfsmanna, m.a. um líðan, vinnuaðstöðu og launakjör.
4. Fræðsla
Starfsmönnum standi til boða fræðsla eða námskeið um jafnréttismál á ári hverju. Lagt er til að m.a. verði fjallað um eftirfarandi atriði: jafnrétti kynjanna, launajafnrétti, einelti, kynferðislega áreitni og framgangsmöguleika eftir kynferði.
5. Hvatning, jákvæðni, samkennd
Til að stuðla að hvatningu, jákvæðni og samkennd, sbr. lið 3.2 í jafnréttisáætlun, er lagt til að Leiðarljós í samskiptum, sem starfsfólk kom sér saman um á Flúðum haustið 1999 og voru yfirfarin í Kríunesi í febrúar 2009, verði gerð sýnileg þannig að það verði starfsmönnum stöðug áminning. Karlar innan stofnunarinnar skulu hvattir til að kynna sér réttindi sín skv. kjarasamningum, t.d. hvað varðar rétt til að vera frá vinnustað vegna veikinda barna undir 13 ára aldri.
6. Hvert á að leita?
Jafnréttisnefnd útnefnir trúnaðarmann jafnréttismála til tveggja ára í senn. Hlutverk hans er að vera starfsmönnum til ráðgjafar finnist þeim á sér brotið á grundvelli kynferðis, sbr. 2.7 og 3.3 í jafnréttisáætluninni. Trúnaðarmaðurinn útfærir hlutverk sitt í nánu samráði við forstjóra og jafnréttisnefnd.