Beint á efnisyfirlit þessa skjals.

Páskar

Hallgrímur Pétursson - verkefnahefti

Hallgrímur Pétursson samdi fjölda ódauðlegra ljóða bæði trúarlegra og veraldlegra. Hallgrímur hefur vefsteinnskilið eftir sig fjársjóð ljóða sem mikilvægt  er fyrir komandi kynslóðir að þekkja. Hér finnur þú verkefnahefti þar sem skoðuð eru mörg af þekktari ljóðum Hallgríms en einnig eru verkefni úr minna þekktum ljóðum hans.   

Eitt af þekktari ljóðum Hallgríms Péturssonar  Um dauðans óvissan tíma orti hann til minningar um dóttur sína, Steinunni sem lést rúmlega þriggja ára gömul. Hér getur að líta legstein sem talið er að Hallgrímur hafi höggvið í nafn dóttur sinnar. Steinn þessi er varðveittur í Hvalsneskirkju og á honum er áletrunin STEINUNN HALLGRÍMSDÓTTIR 1649.

Þeir sem áhuga hafa á að kynna sér ævi Hallgríms er bent á að lesa ágrip af sögu hans í skjali sem hér fylgir.

Verkefnahefti samið af Svanhildi Kr. Sverrisdóttur

Æviágrip Hallgríms Péturssonar

Fróðleg grein um legstein Steinunnar Hallgrímsdóttur.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar