Beint á efnisyfirlit þessa skjals.

Námsefnishöfundar

SólrúnHarðardóttir

Sólrún Harðardóttir

Sólrún Harðardóttir lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands vorið 1988 og meistaranámi frá Háskólanum í Wales árið 1992. Sólrún lagði stund á nám í námsefnisgerð og notkun miðla í kennslu. Sólrún var kennari við Grandaskóla í Reykjavík og Grunnskólann á Hólum og var starfsmaður Kennaraháskólans um árabil. Nú er Sólrún endurmenntunarstjóri Háskólans á Hólum. Hún sér þar einnig um fjarkennslu, kynningarmál og vefsíðu skólans.

Í júní 2006 hlaut Sólrún íslensku menntaverðlaunin fyrir námsefnisgerð. Í áliti dómnefndar segir: " Þörf fyrir fjölbreytt og vandað námsefni á sviði umhverfis- og náttúrufræða í íslenskum grunnskólum hefur farið vaxandi meðal annars vegna aukinnar vitundar um gildi þessarar þekkingar. Sólrún Harðardóttir hefur haslað sér völl sem námsefnishöfundur á þessu mikilvæga sviði og einkennist vinna hennar af alúð og virðingu fyrir efninu auk sérlegrar þekkingar hennar á sviði námsefnisgerðar."

Fyrsta kennslubók Sólrúnar sem út kom hjá Námsgaganstofnun nefndist Vasareiknar en síðan hafa komið út fjölmargar bækur sem einkum tengjast náttúru og lífríki landsins. Sólrún hefur einnig komið að gerð vefefnis. Bækur Sólrúnar sem út hafa komið hjá Námsgagnastofnun eru: Náttúran allan ársins hring, Komdu og skoðaðu himingeiminn, Komdu og skoðaðu hafið og Lífríkið í sjó. Auk þessa hefur Sólrún skrifað bækur fyrir bæjarfélögin Garðabæ og Kópavog.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar