Námsefnishöfundar
Námsefnishöfundar - Huldufólk Námsgagnastofnunar
Tugir ef ekki hundruð starfandi kennara hafa komið að námsefnisgerð fyrir Námsgagnastofnun og Ríkisútgáfu námsbóka hér áður fyrr. Þessir höfundar hafa markað djúp spor í íslenska skólasögu og haft mikil áhrif á skólastarf og kennsluhætti.
Hér á síðunni verða á næstunni kynntir nokkrir höfundar. Líta verður á þá sem fulltrúa hins stóra hóps námsefnishöfunda því ógjörningur er að kynna þá alla.



