Beint á efnisyfirlit þessa skjals.

Námsefnishöfundar

Þóra Kristinsdóttir

Þóra Kristinsdóttir

Fyrsti bókaflokkurinn sem Þóra samdi ásamt Rannveigu Löve árið 1974 var Leikur að orðum.

Þær Rannveig voru þá nýkomnar úr sérkennaranámi í Osló og sáu að mikil þörf var á námsefni af því tagi sem Leikur að orðum var.

Árið 1976 kom síðan út efni til lestrarkennslu undir nafninu Við lesum sem Þóra samdi ásamt samkennurum sínum Björgvini Jósteinssyni og Helgu Magnúsdóttur. Þetta efni byggir á hinni svokölluðu hljóðaaðferð og markaði tímamót í lestrarkennslu í íslenskum skólum er það kom út. Segja má að Við lesum hafi tekið við bókunum Gagn og gaman sem Ísak Jónsson stofnandi Ísaksskóla og brautryðjandi í skólamálum samdi og notaðar voru í áratugi. Við lesum A og B eru enn í notkun í skólum landsins í nokkuð endurskoðaðri mynd frá upphaflegu útgáfunni. Á undanförnum árum hafa komið út eftir Þóru bækur eins og Mál er miðill og Ritrúnarbækurnar (Pínulitla Ritrún, Litla ritrún og Ritrún) sem hún samdi ásamt Kolbrúnu Sigurðardóttur kennara. Þær sömdu einnig bækurnar Mál til komið, Mál í mótun og Mál er miðill. Þóra er einnig höfundur Málræktarbókanna ásamt Guðmundi B. Kristmundssyni og Rósu Björk Þorbjarnardóttur. Þau þrjú sömdu einnig Stafsetnigarverkefni sem út komu í þremur heftum. Til viðbótar má nefna bækurnar Í stafaleik, meðhöfundur Bryndís Gunnarsdóttir og Ísland - landið okkar. Þóra starfar enn fyrir Námsgagnastofnun sem ráðgjafi við útgáfu lestrarkennsluefnis. Ferillinn spannar því rúm þrjátíu ár.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar