Beint á efnisyfirlit þessa skjals.

Námsefnishöfundar

Ragnheiður Gestsdóttir

Ragnheiður Gestsdóttir

Ragnheiður Gestsdóttir hlýtur í ár Norrænu barnabókaverðlaunin. Hún fær verðlaunin fyrir feril sinn sem rithöfundur og myndlistarmaður en þó einkum fyrir bókina Sverðberann. Ragnheiður hefur á síðastliðnum árum samið og myndskreytt fjölda bóka fyrir Námsgagnastofnun. Fyrsta bókin sem Námsgagnastofnun gaf út eftir Ragnheiði var Ljósin lifna sem hún myndskreytti einnig. Síðan hafa margar bækur fylgt í kjölfarið. Hún samdi og myndskreytti bækurnar Ekki lengur Lilli og Valdi og Vaskur og tók saman efni í Sögustein og Óskastein. Ragnheiður samdi og myndskreytti lestrarkennsluefnið Það er Leikur að læra ásamt Ragnheiði Hermannsdóttur. Myndskreytingar Ragnheiðar prýða m.a. Ritrúnarbækurnar, bókina Á prjónunum, Skólabókin mín og kristinfræðinámsefnið Undrið.

Kennsluleiðbeingar Ragnheiðar með skemmtilegum hugmyndum um notkun Smábókanna má finna hér á vefnum, smellið hér.

Námsgagnastofnun óskar Ragnheiði hjartanlega til hamingju með verðlaunin.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar