Beint á efnisyfirlit þessa skjals.

Námsefnishöfundar

AJons1

Áslaug Jónsdóttir

Áslaug Jónsdóttir hefur myndskreytt fjölda bóka fyrir Námsgagnastofnun

Áslaug Jónsdóttir, myndskreytir, hlaut íslensku myndskreytiverðlaunin í ár fyrir bókina Nei, sagði litla skrímslið sem Mál og menning gaf út. Þetta er í þriðja skipti sem verðlaunin eru veitt. Áður hafa þau Halla Sólveig Þorgeirsdóttir og Brian Pilkington hlotið þessi verðlaun. Verðlaunin eiga að vekja athygli á mikilvægi og gildi myndskreytinga í barnabókum.

Áslaug Jónsdóttir er fædd 31. mars 1963. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1983, nam við Myndlista- og Handíðaskóla Íslands, 1984-1985, síðan Skolen fir Brugkunst í Kaupmannahöfn 1985-1989 og tók þaðan lokapróf úr Teikn- og grafíkdeild. Hún er starfandi myndskreytir, barnabókahöfundur, myndlistarmaður og grafískur hönnuður.

Áslaug hefur starfað mikið fyrir Námsgagnastofnun en alls hefur hún myndskreytt sex bækur sem stofnunin hefur gefið út. Þær eru Rumur á Rauðhamri, Komdu og skoðaðu fjöllin, Komdu og skoðaðu hringrásir, Unugata, Dúfur í Dalabæ og Ein jörð fyrir alla – Vegvísir fyrir kennara.

Starfsfólk Námsgagnastofnunar óskar Áslaugu hjartanlega til hamingju með verðlaunin.



 

 

 

efnisyfirlit síðunnar