Mánuðirnir
Nóvember
Nóvember er ellefti mánuður ársins. Þegar hann hefst er nokkuð liðið á gormánuð en gormánuði lýkur 25. nóvember. Mánuðurinn Ýlir hefst svo 26. nóvember. Þessir gömlu mánuðir heita skrýtnum en skemmtilegum nöfnum.
Dagur íslenskrar tungu
Í nóvember eru ekki margir hátíðisdagar sem við höldum sérstaklega upp á. Þó er einn dagur sem hin seinni ár hefur fest sig í sessi en það er dagur íslenskrar tungu. Sá dagur er haldinn hátíðlegur á afmælisdegi Jónasar Hallgrímssonar 16. nóvember. En Jónas var eitthvert stórbrotnasta skáld sem Ísland hefur átt.
Þó svo að ekki séu margir dagar sem gefa tilefni til hátíðahalda í nóvember greinir Almanak hins íslenska þjóðvinafélags frá mörgum dögum er tengjast fornum dýrlingum og kirkjusögunni. Hér verður aðeins stiklað á stóru en þið getið lesið ykkur til um dýrlingana í bókinni Saga daganna eftir Árna Björnsson á blaðsíðum 708-710.
Þann 1. nóvember er Allra heilagra messa. Þetta er messudagur þeirra heilagra manna sem ekki hafa sérstakan messudag.
Þann 2. nóvember er síðan Allra sálna messa. Í gamla daga trúðu menn því að eftir dauðann biði þeirra dvöl í svokölluðum hreinsunareldi. Dvöl í hreinsunareldi getur varla verið mjög skemmtileg svo hægt var að kaupa sérstaka sálumessu af kirkjunni. Sálumessan átti að stytta dvöl hins látna í hreinsunareldinum. Fátækt fólk hafði ekki efni á að kaupa sérstaka messu svo á Allra sálna messu var sungin sálumessa yfir öllum sem ekki höfðu haft efni á sérstakri sálumessu.
Þann 6. nóvember er Leonardusmessa. Leonardus mun hafa verið uppi á 6. öld. Hann er sagður hafa verið höfðingi í Frakklandi en hann er verndari fanga og sængurkvenna. Sagan segir að einu sinni hafi konungur Frakklands verið á veiðum með drottningu sinni. Drottningin var að því komin að fæða barn. Á þessum tíma var mjög hættulegt að fæða barn. Margar konur dóu og börnin líka. Leonardus mun hins vegar hafa bjargað drottningunni og barninu með bænalestri.
Þann 11. nóvember er Marteinsmessa en þessi dagur er útfarardagur Marteins biskups árið 397 í Frakklandi. Marteinn var einn helgasti miðaldadýrlingur á Íslandi og víða erlendis. Ein frægasta sagan af Marteini er sú að þegar hann var ungur hermaður var hann einu sinni staddur í frönsku borginni Amiens. Þar sá hann nakinn beiningamann eða betlara sem var að krókna úr kulda. Marteinn á þá að hafa sniðið yfirhöfn sína í tvennt og gefið veslings manninum helminginn. Næstu nótt vitraðist Jesús Kristur Marteini. Var Jesús þá klæddur kápuslitri beiningamannsins. Það var þá Jesús sjálfur sem hafði orðið á vegi Marteins í líki nakins beiningamanns.
Þann 13. nóvember er svo Briktíusmessa. En Briktíus var biskup í Frakklandi. Briktíus tók við biskupsembætti af Marteini.
Þannn 21. nóvember er Maríumessa en Maríumessur voru sjö á ári hér á landi. Hér er vitanlega átt við Maríu mey móður Jesú.
Þann 22. nóvember er Sesilíumessa. Sagt er að Sesilía hafi verið tekin af lífi, hálshöggvin. Til þess þurfti þrjú högg þrátt fyrir það lifði Sesilía samt í þrjá daga. Heilög Sesilía er verndari tónlistarmanna og söngvara. Sesilíumessa var lögtekin á Íslandi árið 1179. Sesilía var dýrlingur í Nesi í Aðaldal, Saurbæ í Eyjafirði og líklega Húsafelli í Borgarfirði.
Þann 23. nóvember er Klemensmessa. Sumar sögur af dýrlingum eru nokkuð fjarstæðukenndar en jafnframt skemmtilegar. Svo er um söguna af Klemensi en hún greinir frá því að Klemens hafi verið sendur í þrælkunarvinnu. Honum var síðan sökkt í sjó með akkeri bundið um hálsinn. Mörgum öldum síðar fundust svo líkamsleifar hans og akkerið óskemmt og var allt saman flutt til kirkju hans í Róm. Klemens var höfuðdýrlingur einnar kirkju í Vestmannaeyjum og á Hofi í Öræfum.
Katrínarmessa er 25 nóvember. Katrín var frá Alexandríu. Í bókinni Saga daganna segir að Katrín hafði neitað að giftast Rómarkeisara því hún væri brúður Krists. Hún lagði svo fjörutíu heimsspekinga að velli í rökræðum um kristindóminn. Katrín var síðan sett í fangelsi eða dýflissu eins og það er stundum kallað. Dúfa kom á hverjum degi og færði henni mat. Katrín var síðan líflátin á hroðalegan hátt sem má lesa um á síðu 709 í bókinni Saga daganna.
Konráðsmessa er 26. nóvember. Konráð var biskup í Þýskalandi. Hann fór þrisvar sinnum til Landsins helga eins og Ísrael er stundum kallað. Í einni ferðinni gekk hann til altaris eins og við köllum það í dag. Þegar hann drakk úr bikarnum hljóp ofan í hann eitruð könguló. Konráði varð ekki meint af.
Andrésmessa er 30 nóvember. Eins og hægt er að lesa um í Biblíunni var Andrés fiskimaður og postuli. Andrés var bróðir Péturs sem líka var postuli. Andrés var talinn krossfestur á X-laga krossi. Sagt er að líkamsleifar hans hafi verið fluttar til Skotlands og er hann síðan þjóðardýrlingur Skota.
Fæðingarhátíð Bahá´u´llah
Bahá´u´llah stofnandi bahá´í - trúarinnar fæddist 12. nóvember 1817 í Persíu. Spámaðurinn Báb hafði sagt fyrir um komu hans sem næsta boðbera Guðs á eftir Abraham, Móse, Búdda, Zaraþústra, Kristi og Múhameð.
Shichigosan
Þann 15. nóvember er haldin í Japan mikil fjölskylduhátíð, shichigosan. Foreldrar þakka þá guðunum barnalán sitt. Þriggja og sjö ára stúlkur og þrigga og fimm ára drengir eru klædd í sérstakan viðhafnarklæðnað til að heimsækja hofið.
Vinnublað
Verkefni sem gaman er að vinna þegar mánuðirnir eru rannsakaðir.
Heimildir
Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags 2007. Útgefandi er Hið íslenska þjóðvinafélag
Saga daganna eftir Árna Björnsson. Útgefandi er Mál og menning
Trúarbragðadagatal 2008 Útgefandi félagsmálaráðuneytið og fleiri.



