Beint á efnisyfirlit ţessa skjals.

Mánuđirnir

Júlíus Í Vallanesi í heyskap

Ágúst

Ágúst er áttundi mánuđur ársins. Ţegar ágústmánuđur hefst standa enn yfir hinn forni mánuđur heyannir og svo hundadagarnir. Ágúst er kenndur viđ Ágústus keisara (63 f.Kr.– 14 e.Kr.). Ţessi mánuđur hét áđur Sextilis, dregiđ af sextus eđa sjötti en ţá var mars fyrsti mánuđur ársins.

Frídagur verslunarmanna eđa verslunarmannahelgin

Nú á dögum er verslunarmannahelgin mesta ferđahelgi ársins. Fólk flykkist á útihátíđir víđs vegar um landiđ, í sumarbústađi eđa bara leggst á flakk um landiđ. En nú eru margir búnir ađ gleyma ţví ađ verslunarmannahelgin er kennd viđ frídag verslunarmanna sem er alltaf fyrsti mánudagur í ágúst. Sú dagsetning hefur haldist óbreytt frá ţví 1934. Upphaf ţessa dags má rekja allt til ársins 1874 en ţá var haldin mikil ţjóđhátíđ á Ţingvöllum. Tilefniđ var 1000 ára byggđ Íslands. Kristján konungur 9. fćrđi ţá Íslendingum stjórnarskrá og voru hátíđarhöld víđa um land. Ađalhátíđin var haldin í Reykjavík 2. ágúst og ţann 7. ágúst á Ţingvöllum. Ţessarar hátíđar var minnst reglulega í Reykjavík í kringum aldamótin 1800-1900 og héldu verslunarmenn löngum tryggđ viđ daginn. Eftir síđari heimsstyrjöld varđ frídagur verslunarmanna almennur frídagur, notađur til ferđalaga og skemmtanahalds.

Tvímánuđur hefst ţann 26. ágúst. Tvímánuđur er fimmti mánuđur sumars og hefst ţriđjudaginn í 18. viku sumars. Í Snorra-Eddu er ţessi mánuđur líka nefndur kornskurđarmánuđur.

Dagar helgađir dýrlingum

Ágúst hefst međ Bandadegi. En ţessi dagur er helgađur lausn Péturs postula úr fangelsi Heródesar í Agrippu. Um ţennan atburđ má lesa í Bibíunni, 12. kafla Postulasögunnar.

2. ágúst er Ólafsmessa hin síđari. En Ólafur konungur Haraldsson var konungur Noregs og féll í hinni frćgu orustu á Stiklastöđum 1030. Skömmu eftir andlát Ólafs virđast hafa orđiđ til um hann helgisagnir og einu ári og fimm dögum eftir andlátiđ var lík hans grafiđ upp og segir sagan ađ bćđi hár hans og neglur hafi vaxiđ sem á lifandi manni. Ólafsmessa hin síđari miđast viđ ţennan uppgröft.

10. ágúst er Lárentíusmessa eđa Lafransmessa. Lárentíus var píslarvottur í Róm og einn af helstu píslarvottum frumkristninnar. Voru međal annars send bein af honum til Englands er kristni var ađ festa ţar rćtur. Hann var líka dýrkađur á Norđurlöndum. Nánar má lesa um Lárentíus á síđu 703 í bókinni Saga daganna.

15. ágúst er Maríumessa en hún var haldin hátíđleg í minningu andláts hennar. Hér er ađ sjálfsögđu átt viđ Maríu mey móđur Krists.

22. ágúst. Er messa međ skrýtnu heiti eđa Symfóríanusmessa. Symfóríanus var píslarvottur í Frakklandi. Hann var hálshöggvinn seint á annarri öld. Stundum var Symfóríanusmessa talin marka upphaf hausts.

24. ágúst er Bartólómeusmessa. Bartólómeus var postuli sem, samkvćmt sögunni, bođađi kristni í fjarlćgum löndum eins og Indlandi og Armeníu. Hann var tekinn af lífi á hryllilegan hátt. Taliđ er ađ líkamsleifar hans liggi í Róm nema handleggurinn sem mun hafa veriđ gefinn til Kantaraborgar á Englandi.

28. ágúst er Ágústínusmessa, messa Ágústínusar kirkjuföđurs. Ágústínus ţessi stofnađi munkaklaustur sem var fyrirrennari Ágústínusarreglu prestlćrđra. Á Íslandi voru nokkur munnkaklaustur af ţeirri reglu. Í Ţykkvabć í Álftaveri, Helgafelli, Viđey á Möđruvöllum í Eyjafirđi og Skriđu í Fljótsdal.

29. ágúst er kallađur höfuđdagur. Ţann dag var Jóhannes skírari hálshöggvinn. Samkvćmt gamalli trú á veđur ađ breytast um höfuđdag og á ţađ veđurlag ađ haldast í nćstu ţrjár vikur.

Hátíđir um víđa veröld

Lailat al-Bara´h

15. ágúst eđa tveimur vikum fyrir ramadan, föstumánuđ múslima, halda ţeir upp á nótt fyrirgefningarinnar. Á ţessari hátíđ biđja múslimar um fyrirgefningu synda sinna. Ţeir trúa ţví ađ ţá ráđist líka örlög komandi árs.

Janmashtami

24. ágúst er janmashtami eđa fćđingardagur guđsins Krishna. Krishna er einn helsti guđ hindúa en ţeir trúa ţví ađ hann sé níunda endurholdgun Vishnu ćđsta guđs hindúa. Krishna ţekkist á bláum líkama. Honum er oft lýst sem tćlandi elskhuga sem dansar í tunglsljósinu.

Vinnublađ

Verkefni sem gaman er ađ vinna ţegar mánuđirnir eru rannsakađir.

Heimildir

Almanak Hins íslenska ţjóđvinafélags 2007.

Útgefandi er Hiđ íslenska ţjóđvinafélag

Saga daganna eftir Árna Björnsson.

Útgefandi er Mál og menning

Trúarbragđadagatal 2008

Útgefandi félagsmálaráđuneytiđ og fleiri



 

 

 

efnisyfirlit síđunnar