Beint á efnisyfirlit þessa skjals.

Krakkar

Spáð í jrutir

Krakkar yrkja

Það er alltaf gaman þegar krakkar spreyta sig á ljóðagerð. Sumir þeirra hafa ef til vill aldrei reynt sig við þá list en aðrir hafa langa reynslu. Ef til vill komast þeir á bragðið og hver veit nema einhver stórskáld framtíðarinnar séu í hópnum.

Álfurinn

Stóð eitt sinn hjá rúmi mínu álfur,

álfur að nafni Þorsi.

Hann brosti blítt alveg eins og kálfur,

en hann líktist ekki Porsi.

Hann bjó eitt sinn í helli,

langt í burtu frá mér.

Hann bjó þar þangað til að hann heyrði hvelli,

og kom svo til mín eins og sér.

 

Það var kaldur blær úti

og mér varð kalt.

Þorsi skreið undir rúm með Kúti,

Kúti hundinum sem borðaði alltaf salt.

 

Eyrún Stefánsdóttir,Ölduselsskóla

Dimma nóttin

 

Nótt er ljóð nætur dimmir.

Margir sofa margir vaka.

Kveldin sofa en vaka samt

Og þurfa að fara þegar sólin sest.

Allir vaka þegar sólin er allt er gaman

og skemmtilegt.

 

Dagur rís og tunglið fer

Ekki er nóttin enn.

Samt er nóttin ekki farin

Heldur kemur hún aftur eftir dag.

Stjörnur rísa þegar sólin fer

og skugginn kemur með þér.

 

                                                                                                 Viktor Pajdak, Ölduselsskóla

                                                                                    Nótt

 

Þegar þú ferð að sofa

skuggalega læðist vofa.

Þú verður svo hræddur

svo hræddur að þú verður mæddur.

Vofan kemur inn

þú tekur um koddann þinn.

Vofunni finnst þú vera sætur

svo sætur að þú verður ætur.

Þú efast um að þú eigir eftir að lifa

og klukkan tifar.

Vofan kemur nær þér...

Meira að segja mús verður svo hrædd

að hún fer inn í holuna mædd.

Boltinn skoppar

vofan hoppar.

Ýskrið í vindinum þýtur

og þú heyrir að pabbi þinn hrýtur.

Svo vaknarðu upp

þá var þetta allt bara bull.

Þetta var draumur eftir allt saman

þetta var ekki gaman!

 

                                                                                    Aníta Rut Hilmarsdóttir, Ölduselsskóla

Ljóð

 Úti er kalt

úti er svalt

veturinn er kominn

veturinn er farinn

snjórinn er farinn.

 

Sumarið er heitt

ég verð rosalega sveitt

grasið er grænt

og sólin er gul

sumarið er farið

sólin er farin.

 

Haustið er komið

haustið er litríkt

laufin fjúka um allt

nú kveður haustið

en vorið kemur.

                                                                                                   Selma Rut Forberg,Ölduselsskóla

 

 

Nóttin dimma

 

Nóttin er dimm

Nóttin er fögur

Meira að segja fegurri en dagur,

Margur veit hvort einhver vakir eða kannski í gröfinni sefur,

Sólin kemur og tunglið fer, menn megi vita hvort einhver nýr kemur í heiminn hjá þér.

 

Þegar dagurinn rís og nóttin dimma fer,

Kemur ljós á himni en myrkrið hverfur smátt og smátt,

Myrkrið úr rökkrinu fína, en hverfur samt smátt með

þér.

                                                           Tómas Ingi Hlynsson, Ölduselsskóla

 

Sigga í sólinni lá

 

Sigga í sólinni lá

Ekki var annað að sjá

En að fugl sæti á hennar tá

Og henni brá

 

Önd

Þarna er önd

Hún hefur rönd

En ég hef hönd

Þarna eru lönd

 

Röng

Hún er röng

En ég söng

Þarna er töng

Þetta eru göng

 

                                              Sölvi Már Birgisson, Ölduselsskóla

Vetrarljóð!

 Úti er kalt

Vindur og vetur.

Á götunni er salt,

og Solla það metur.

                                             Anetta Kristinsdóttir, Ölduselsskóla

Vetur kemur

 Kalt er úti.

Svell og vindur.

Haustið aftur höfði lúti.

Veturinn þeytir, fljúgandi kindur.

Krakkar leika og veðrinu stúti.

Selurinn kátur og syndur.

Því vetur er úti.

 

                                                                                     Áslaug Rún,  Breiðagerðisskóla

Veturinn

 Veturinn er kaldur

og snjórinn með en inni

er hlýtt þar sem hægt er að

leika sér.

 

leikur

 

þar sem er leikur

þar er reykur,

þar sem er reykur

þar er kveikur,

þar sem er kveikur

þar er leikur

                                              Bjarni Tryggvason,  Ölduselsskóla

Dauða meyjan

 

Maður lifandi hún er dauð og er að hreyfa sig

Hljóp í gær og vældi í dag

Í dag fór hún að sofa og í gær fór hann að lofa

hvað var hún að segja kannski var það meyja

ég hugga þessa sál en hún var sem bál

ég er engla sál en þú ert sál frá djöfli

Það er ekki hægt að hugga svona sál

því hún er sál frá djöfli ég hef enga

krafta til að hjálpa henni ég fer og

hleyp og hún eltir hvað gerist það var

ekki sagt.

                                                                   Hafliði Jónsson, Breiðagerðisskóla

Konnaljóð

Konni labbar úti og sér þá

eldgamla stóra tá.

Ekkert annað hann sá

en þessa forljótu tá.

 

Konni skoðar hana þá

 og maur á henni sá.

Konna brá þá

og fór að spá.

 

Konni sá gæs

sem var læs.

 Hún fæddi aðra gæs

og allt fór í splæs.

                                                Konrad Damrath,  Ölduselsskóla

Ef þú ferð að sofa...

 

Ef þú ferð að sofa,

læðist að þér vofa.

Svo skuggaleg að það borgar sig að fara ekki að sofa.

 

Til að halda þér vöku

lestu bókina ‘Úti á grasinu röku’

en til að ná athygli skellir vofan hurð

það hefur hún gert oft áður, því hún var til fyrir Krist burð.

 

Þú heyrir barnsgrát,

en líka skelli hlátur.

Þú rekur upp öskur,

Sérð að vofan er með brotnar flöskur.

 

Verður þú hræddur um líkurnar þínar á að lifa,

en sérð að á glugganum er lítil rifa.

Sérð að klukkan er að tifa,

sérð að það er ekki tími til að flýja.

 

Vofan kemur nær og nær,

Þú biður: Ó, vofa mín kær!

leyfðu mér að lifa,

rekur hún upp skellihlátur.

 

Þú rekur upp annað öskur,

En vaknar og sérð að það voru aldrei neinar flöskur.

Þetta var bara ein martröð.

Næsta dag ferð þú í vinnuna og þá er umferðarörtröð.

Þú sofnar loks um kvöldið með bros á vör.

                                                                                                Þórdís Erla Magnúsdóttir, Ölduselsskóla

Lækurinn

Lækurinn rennur í bugðum

og beygjum

Skoppar og á endar loks í

söltum sjónum

 og verður þar að

einum dropa í

söltu hafinu.

                                          Þengill Jónsson, Breiðagerðisskóla                                    

Litirnir í heiminum

Rauður táknar blóð

það er lífsgjafi dýra og manna.

Og ég er fylltur miklum móð

Og svaka er þetta falleg kanna.

 

Blár táknar vatn

án vatns væri ekki líf.

Og góði drykkurinn malt.

Og ég hef svaka smekk fyrir stíl.

                                         Grímur Garpsson, Ölduselsskóla

Vetur

Úti er kalt.

Snjór út um allt,

snjórinn sest yfir allt

Og það er hvasst.

Úti er vetur sem nær yfir allt

það er svo kalt

 

Mikill er klakinn

Sem er yfir allt

Kannski útaf því hve kalt úti er.

Úti er kalt

og þar er svalt.

                                              Þórdís Anna Björnsdóttir, Breiðagerðisskóla

Vetur, sumar, vor og haust

Ég horfi út um gluggann,

allt er undir snjó.

Veturinn tekur yfir völdin

og notar sína kló.

 

Ég horfi út um gluggann,

allt er yndislegt

sumarið er komið,

það er skemmtilegt.

 

Ég horfi út um gluggann,

hausta tekur nú.

Við út í veðrið örkum,

ég og þú.

 

Ég horfi út um gluggann,

vorið tekur völd.

Sólin skín og syngur,

þessi tíð er ekki köld.

                                                     Sigurlaug Guðrún Jóhannsdóttir; Ölduselsskóla

 

Vetur

Hér er kalt

úti er svalt

veturinn er kominn yfir okkar litla land

á götuna setjum við sand

snjórinn er útum allt

 ef mér er kalt þá fæ ég mér malt.

 

 

Ég sé konu úti að ganga ein úti í snjónum 

meðan ég er inni hjá gömlum hjónum

síðan fer ég út

og bind á trefilinn hnút

ég sé krakka skemmta sér,

þau skemmta sér mikið hér.

 

Á leiðinni til baka

þá stíg ég á klaka

þá sé ég krakka á svellinu renna

á meðan eldurinn er að brenna.

Mér finnst snjórinn yndislegur

og rosalega skemmtilegur.

                                                                                Steinunn Bóel; Ölduselsskóla

 

Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu

16. nóvember

og ekkert ártal er.

Afmæli er í dag

þá syngjum við afmælislag.

 

Jónas Hallgrímsson

dagurinn í dag

til heiðurs honum er,

já, dagurinn í dag.

                                        Elísa Guðmarsdóttir

                                                6.LMK, Breiðagerðisskóla

 

 

 

 

 

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar