Fréttir

islmenntav
islmenntav

Íslensku menntaverðlaunin

8.6.2010

Verðlaunin eru miðuð að íslensku grunnskólastarfi og þeim ætlað að hvetja og verðlauna þá sem stuðlað hafa að grósku í því starfi. Verðlaunaafhendingin fór fram í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi en verðlaunin voru veitt í fjórum flokkum.

Lækjarskóli hlaut verðlaun í flokki skóla sem sinnt hafa vel nýsköpun eða farsælu samhengi í fræðslustarfi. Haraldur Haraldsson, skólastjóri Lækjarskóla, tók við verðlaununum fyrir hönd skólans.

Ragnheiður Hermannsdóttir hlaut verðlaun í flokki kennara sem skilað hafa merku ævistarfi eða á annan hátt skarað fram úr. Ragnheiður er kennari við Háteigsskóla en hefur einnig sinnt kennslustörfum í kennslufræði við Kennaraháskólann ásamt því að hafa starfað ötullega að námsefnisgerð.

Lindu Heiðarsdóttur voru veitt verðlaunin í flokki ungs fólks sem í upphafi kennsluferils síns hefur sýnt hæfileika og lagt alúð við störf sín. Þá voru Iðunni Steinsdóttur veitt verðlaunin sem höfundi námsefnis sem stuðlað hefur að nýjungum í skólastarfi fyir námsefnið Óðinn og bræður hans, Lífið í Ásgarði og Æsir á fljúgandi ferð. Freydís Kristjánsdóttir myndskreytti allar bækurnar.

(heimild mbl.is)

Námsefni Iðunnar Steinsdóttur

Námsefni Ragnheiðar Hermannsdóttur



Í greinargerð með verðlaunum Iðunnar segir m.a.:

Á árunum 2006-2009 gaf Námsgagnastofnun út þrjár bækur Iðunnar, Óðinn og bræður

hans – Heimur verður til, Lífið í Ásgarði – Gullnar töflur í grasi og Æsir á fljúgandi ferð –

Hefnd Loka, þar sem hún endursegir Eddu Snorra Sturlusonar fyrir nemendur á mið- og efsta

stigi grunnskóla. Í bókunum er ásatrú og sá menningararfur sem henni fylgir borin á borð fyrir

íslensk nútímabörn á líflegan og aðgengilegan hátt í hnitmiðuðum frásögnum af ásum og

ásynjum og lífi þeirra í Ásgarði. Bækurnar birta nemendum heimsmynd norrænnar goðafræði

og gera þeim um leið kleift að tengjast íslenskum fornbókmenntum og bakgrunni menningar

nútímans. Bækurnar eru allar hinar vönduðustu að gerð, hinn forni texti hóflega einfaldaður,

og fjörlegar litmyndir Freydísar Kristjánsdóttur glæða þær lífi.

Öllum bókunum þremur fylgja ítarlegar kennsluleiðbeiningar. Þær gera kennurum kleift

að nýta með fjölbreytilegum hætti þann efnivið sem fram kemur í bókunum og í norrænni

goðafræði almennt.

Að mati dómnefndar er hér um að ræða námsefni sem á lifandi og nýstárlegan hátt færir

nýrri kynslóð íslenskra barna arf sem lifað hefur með þjóðinni um aldaraðir og vekur áhuga

þeirra á eigin uppruna og menningarheimi. Efnið nýtist jafnframt til að auka lesskilning

nemenda og til þjálfunar við ritunarkennslu. Þá má líta á gerð þessa námsefnis sem rökréttan

lið í þróun Iðunnar sem námsefnishöfundar. Á því sviði hefur hún einnig gefið út efni til

trúarbragðafræðslu og lestrarkennslu, auk þess sem fjölmargar barna- og unglingabóka hennar

hafa verið notaðar í bókmenntakennslu í grunnskólum landsins.

 

 

 

efnisyfirlit síðunnar