Fréttir
Sigrun_233_(2)
Númi og konurnar þrjár
Bókin er til lestrarþjálfunar auk þess sem henni er ætlað að vekja ungmenni til vitundar um mikilvæg atriði í tengslum við slysavarnir s.s. notkun á öryggisbúnaði við hjólreiðar og á hjólabretti. Einnig minnir hún þau á neyðarnúmerið 112. Númi og konurnar þrjár er skreytt litríkum og fjörlegum myndum teiknuðum af Halldóri Baldurssyni.
Í tilefni útgáfu bókarinnar las höfundur bókina fyrir nemendur í 4. bekk Lágafellsskóla og kunnu þau vel að meta glettna söguna. Að lokum fengu þau bókamerki og endurskinsmerki frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.
Skoða Númi og konurnar þrjár



