Leit að námsefni

Alfræði íslenskrar tungu

Alfræði íslenskrar tungu-CD

Margmiðlunardiskurinn skiptist í tvo aðalhluta - Alfræði og Málslóðir.

Alfræðin er aðalhluti verksins; þar er að finna margvíslegan fróðleik um mál og málnotkun.

Hvernig læra börn að tala? Hvernig skynjum við málhljóðin? Hvernig hefur íslensk tunga breyst frá landnámsöld til okkar daga eða er hún kannski óbreytt? Hvernig varð ritmálið til? Hver er uppruni íslenskra mannanafna?

Þetta eru nokkrar þeirra spurninga sem finna má svör við í greinum Alfræðinnar, þar sem fremstu fræðimenn okkar fjalla á alþýðlegan hátt um mál og málfræði.

Í Málslóðum er efni þríþætt.

Þar eru Troðnar slóðir en í þeim er hluti Alfræðiefnisins endursagður og einfaldaður. Textinn í Troðnum slóðum er oft aðeins til stuðnings myndefni sem þar er bæði til fróðleiks og skemmtunar.

Á Tímaás er að finna stiklur úr mannkynssögu, Íslandssögu og íslenskri málsögu og

þriðji þáttur Málslóða er Safn hljóða og mynda en þar er mynd- og hljóðefni Alfræðigreinanna safnað saman til hægðarauka.

Gífurlegt magn upplýsinga er að finna á diskinum, t.d. hefur alfræðihluti verksins að geyma:

37 greinar um íslenskt mál eftir 29 höfunda - allt samið fyrir Alfræðina.

Efnið samsvarar u.þ.b. 1000 bókasíðum, 379 myndir og töflur, 296 hljóðskrár, 129 myndbandsbrot, 413 baktextar; lyklað er í þá úr greinum, 782 gluggapóstar - stuttar skilgreiningar, 270 Orðaborgarar - safn örstuttra fróðleiksgreina um orð og orðasambönd. · Um 4000 orðastæður · Yfir 4000 krækjur milli greina eða í ítarefni · Leitarmöguleika í Réttritunarorðabók og Orðastæðum · Leitarmöguleika í öllum greinum Alfræðinnar.

Ritstjórn önnuðust Þórunn Blöndal og Heimir Pálsson.

Stýrikerfi: Microsoft® Windows®95 eða nýrra.

Ef þú lendir í vandræðum með að opna diskinn getur það verið vegna þess að þú þurfir að breyta yfir í Windows '95

 Hvernig breyta á stýrikerfi tölvunnar í Windows '95

 

  • Námsgrein: Íslenska
  • Vörunúmer: 19475
  • Aldursstig: Unglingastig, Framhaldsskóli
  • Útgáfuár: 2001
  • Höfundur: Ýmsir
  • Efnisorð: Bókmenntir, Málfræði, Ritun, Stafsetning
 

 

 

efnisyfirlit síðunnar